21.4.2023

Herdís Steingrímsdóttir hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2023

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag, 20. apríl, á sumardaginn fyrsta. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Aðalræðumaður að þessu sinni var Peter Mollerup lögfræðingur.

Verðlaun Jóns Sigurðssonar 2023 féllu í hlut dr. Herdísar Steingrímsdóttur hagfræðings. Verðlaunin hlaut Herdís fyrir rannsóknir sínar á sviði vinnumarkaðshagfræði sem hafa mikilvægt samfélagslegt gildi, jafnt í Danmörku sem á Íslandi. Áherslur rannsókna Herdísar hafa gjarnan beinst að kynjajafnrétti, fjölskyldum, menntun og heilbrigði.

Verðlaunin hafa áður hlotið:

2022: Gunnar Þór Bjarnason, sagnfræðingur

2021: Auður Hauksdóttir, prófessor emerita

2020: Böðvar Guðmundsson, rithöfundur, ljóðskáld, leikskáld og fv. kennari

2019: Vibeke Nørgaard Nielsen, rithöfundur og fv. kennari

2018: Tryggvi Ólafsson, myndlistarmaður

2017: Annette Lassen, rannsóknardósent

2016: Dansk-Islandsk Samfund

2015: Sigríður Eyþórsdóttir, tónlistarmaður og kórstjóri

2014: Bertel Haarder, fyrrverandi menntamálaráðherra Danmerkur

2013: Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari

2012: Pétur M. Jónasson, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus

2011: Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands

2010: Søren Langvad, byggingarverkfræðingur og forstjóri

2009: Erik Skyum-Nielsen, bókmenntafræðingur og þýðandi

2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur

Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þau verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.