• Inga Lísa

10.10.2017

"Hugsað heim"

Meginstef sýningarinnar er heimþrá en myndirnar sýna tilfinningatengsl höfundar við heimalandið og eru fullar af ljúfsárum söknuði. Ljósmyndarinn, Inga Lísa Middleton, er búsett í Bretlandi en sýnir hér myndir frá heimalandi sínu – Íslandi. Ljósmyndirnar eru teknar víðs vegar um landið og á heildina litið mynda þær ferðasögu. Myndefnið er bæði áþreifanlegt og táknrænt í senn: Kröftugir fossar sem knýja vatnsaflsvirkjanir, lóan sem boðar komu vorsins eftir langan vetur og hvönn sem löngum hefur verið notuð sem lækningajurt. Í myndunum kallast hið hversdagslega á við ljóðræna sýn á landið. Myndirnar eru unnar með aðferð sem á ensku nefnist cyanotype og var þróuð á 19. öld til að fjölfalda prentefni. Heitið vísar til bláa litarins, cyan, sem er einkennandi fyrir myndirnar.

Aðferðin byggir á efnahvörfum tveggja efna. Með þessum hætti er eiginleikum varns snúið við og í staðinn fyrir að skola litinn burt festir vatnið hann við pappírinn, en segja má að hinn djúpblái litur enduspegli hið tæra bláleita ljós sem einkennir norðurheimskautið.

 Inga Lísa Middleton, ólst upp á íslandi en hún er með BA gráðu í ljósmyndun frá the University for the Creative Arts, Surrey Uk, og með MA gráðu í ljósmyndun frá “The Royal college of Art” í London. Hún hefur tekið ljósmyndir fyrir auglýsingar og tímarit, myndskreitt bækur, unnið sem ljósmyndari í bíómyndum , tekið portrett ljósmyndir og sýnt víða. 

Inga Lísa hefur skrifað, leikstýrt og stundum framleitt sjónvarpsþætti, stuttmyndir, auglýsingar og myndbönd. 

Hún hefur verið með einkasýningar í Norræna húsinu,  Þjóðminjasafni Íslands, Sendiráðí ?Íslands í London, í Sendiráði islands í Kaupmannahöfn og hefur einning tekið þátt samsýningum í the Mall galleries og í South bank centre London, Gallery North og Herstmonceux Castle East Sussex ásamt nokkrum alþjóðlegum samsýningum.