27.8.2020

Inga Dóra Sigurðardóttir sýnir í Jónshúsi

Laugardaginn 23. ágúst opnaði sýning Ingu Dóru Sigurðardóttur, Náttúrudraumar á sal Jónshúss.

Til sýnis eru akrýl- og vatnslitamyndir.

Viðfangsefni Ingu Dóru eru aðallega kyrralífsmyndir og landslagsmyndir, en hugmyndirnar sækir hún í íslenska náttúru.

Inga Dóra hefur haldið fimm opinberar sýningar, allar á suður Sjálandi, þar sem hún býr og starfar.

Sunnudaginn 30. ágúst verður Inga Dóra á staðnum og gefst  gestum tækifæri að spjalla við listamamanninn.

Allir velkomnir

Frá kl. 13 – 16.
Kaffi og með því.

Hér eru myndir frá opnuninni og af myndum sem eru til sýnis og sölu.