24.9.2026

Íslensk guðsþjónusta

Íslensk messa í Esajas Kirke – sunnudaginn 27. september kl. 13.00

Í ágúst síðastliðnum tók séra Guðni Már Harðarson við starfi prests Íslendinga í Danmörku.

Sunnudaginn 27. september kl. 13.00 verður íslensk messa í Esajas Kirke. Séra Guðni Már Harðarson prédikar og þjónar fyrir altari í fyrsta sinn fyrir íslenska söfnuðinn í Danmörku.

Kjartan J. Ognibene leikur á orgel og leiðir tónlistina.

Kvennakórinn Dóttir leiðir safnaðarsöng undir stjórn Eyrúnar Ingu Magnúsdóttur.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Eftir messuna verður íslenskt pönnukökukaffi í Jónshúsi.