30.11.2016

Jólastemning í Jónshúsi

Fjöldi fólks lagði leið sína á jólamarkað  Jónshúss síðastliðinn sunnudag.

Gott og fjölbreytt úrval af ýmiskonar varningi var til sölu auk þess var bryddað upp á nokkrum nýjungum. T.d. var boðið upp á myndatöku sem margir nýttu sér. Hildur María ljósmyndari setti upp ljósmynda stúdíó í einu herbergi á safni hússins.

Á bókasafni í kjallara hússins var Christina Blin búin að koma sér fyrir með spilið sitt  Newmero.  Þar gafst börnum og fullornum tækifæri að prófa nýtt borðspil.

Eins og undanfarin ár voru stelpurnar í Kvennakórnum  búnar að setja upp kaffihús. Margir sem lögðu leið sína í Jónshús gáfu sér góðan tíma og fengu sér t.d kleinur og heitt súkkulaði.

Nokkrar myndir frá því á sunnudaginn eru að finna  hér.