20.9.2022

Krakkakirkja í Jónshúsi

Næsta laugardag, 24. september kl. 11 verður bangsadagur í Krakkakirkjunni. Allir eru hvattir til að taka bangsana sína með og verður bangsablessun í boði fyrir þá sem vilja Söngur, gleði og gaman!

Annan hvorn laugardag verður mikið fjör í "sunnudaga"skólanum í Kaupmannahöfn. Við ætlum að syngja og dansa, hlusta á sögur og eiga notalega stund saman. 
Eftir stundina verður boðið upp á hressingu og huggulegheit þar sem krakkarnir geta litað og leikið sér saman.
Allir eru hjartanlega velkomnir