• Ragnhildur Þórðardóttir

8.3.2018

Njótum og nærumst í núvitund

Eru ekki flestir þreyttir á hvað “má” og “má ekki” borða.
Telja grömm og kaloríur. Vigta og mæla. Reikna og skrá.

Samviskubit ef borðað of mikið.
Sektarkennd ef borðað óhollt.

Það eru ekki lífsgæði. 

Á þessu námskeiði er sálfræðileg nálgun á mataræði með hugarfarsbreytingu, frekar en einungis að breyta hegðun eins og flest matarplön gera ráð fyrir.

Þú öðlast færni í að nálgast mat sem nærir og gleður, frekar en að forðast mat.
Hæfni til að gera heilsusamlegt mataræði að lífsstíl og njóta óhollustu án samviskubits
Jafnframt færðu sálfræðileg verkfæri fyrir hug og hegðun til að tileinka þér jafnvægi, fjölbreytni og hófsemi í mat.

Kennt er eftir hugmyndafræði ‘Mindful eating' og hugrænni atferlismeðferð.

Verð: 250 DKK sem greiðist fyrirfram til að tryggja þátttöku.


Þátttakendur fá:

- Kennslugögn og námsefni til að taka með heim.
- Leiðbeiningar um vítamín, fæðubótarefni og bætiefni sem bæta lífsgæði og heilsu.
- Verkfæri núvitundar 
- Möguleiki á eftirfylgni eftir námskeiðið og dýpri einstaklingsmiðaðri samtalsmeðferð.

Miðasala:

https://ragganagli.com/njotum-ad-naerast-namskeid/