17.4.2012

Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi á sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2012, kl. 16.30. Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á lofti verkum hans og hugsjónum.

Dagskrá:

  • Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, setur hátíðina.
  • Kórinn Staka flytur íslenska tónlist.
  • Svavar Gestsson, fyrrverandi sendiherra, flytur hátíðarræðu.
  • Tónlist í flutningi Dísu Jakobs og Mads Morits.
  • Forseti Alþingis afhendir verðlaun Jóns Sigurðssonar.
  • Kórinn Staka flytur lag í tilefni sumardagsins fyrsta.

Léttar veitingar að lokinni dagskrá.

Karl M. Kristjánsson, formaður stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, stjórnar dagskrá.