21.4.2015

Hátíð Jóns Sigurðssonar

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi á sumardaginn fyrsta, 23. apríl 2015, kl. 16.30. Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum.

Dagskrá:

  • Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, setur hátíðina.
  • Kórinn Staka flytur íslenska tónlist.
  • Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, flytur hátíðarræðu.
  • Kórinn Staka flytur íslenska tónlist.
  • Forseti Alþingis afhendir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta.
  • Kvennakórinn í Kaupmannahöfn flytur lag í tilefni sumardagsins fyrsta.

Léttar veitingar að lokinni dagskrá.
Karl M. Kristjánsson, formaður stjórnar Húss Jóns Sigurðssonar, stjórnar dagskrá.