27.4.2015

Sigríður Eyþórsdóttir hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2015

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í dag, 23 apríl, á sumardaginn fyrsta. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta.

Verðlaunin féllu að þessu sinni í hlut Sigríðar Eyþórsdóttur, tónlistarmanns og kórstjóra, fyrir framlag hennar til Íslandskynningar í Danmörku með bókmenntakynningum og tónlistarflutningi.  Þá hefur Sigríður látið mikið til sín taka á fjölbreyttu sviði menningar- og félagsmála meðal Íslendinga í Kaupmannahöfn og nágrenni á undanförnum árum og verið öflugur málsvari menningartengdrar starfsemi í Jónshúsi.

Aðalræðumaður á hátíðinni var Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og flutti hann erindi sem hann nefndi  „Hugsjónir og peysuskapur“. Ræðuna má lesa í heild sinni hér.