23.11.2010

Jólatónleikar Stöku

Jólatónleikar Stöku verða í Rundetårn 9. desember kl. 19:30. Stjórnandi Gísli Magnason.

Á dagskránni eru jólalög frá ýmsum löndum og tímum, hátíðleg, rómantísk og glaðleg - eitthvað fyrir alla. Miðasala á vefsíðu Rundetaarn www.rundetaarn.dk/kalender.htm og við innganginn. Aðgangseyrir: 75 kr (50 kr nemendur).

Aðrar uppákomur í desember þar sem Staka mun koma fram:

  • Laugardaginn 4. desember kl. 16:00 á aðventusamkomu íslenska safnaðarins í Skt. Paulskirkju ásamt Íslenska Kvennakórnum í Kaupmannahöfn
  • Laugardaginn 11. desember kl. 17:00 á jólatónleikum Norðuratlantísku Kóranna í Helligåndskirken ásamt 5 öðrum kórum frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum