8.11.2011

Bókmenntakvöld í Jónshúsi

Fimm rithöfundar kynna og lesa úr verkum sínum í Jónshúsi föstudaginn 11. nóvember. Dagskráin hefst kl. 20 en húsið opnar kl. 19:15.

Höfundarnir eru:

  • Einar Már Guðmundsson
  • Einar Kárason
  • Gyrðir Elíasson
  • Nina Søs Vinther
  • Sölvi Björn Sigurðsson

Dagskráin verður á íslensku.

Léttar veitingar og bækur til sölu (einungis er tekið við reiðufé – næsti hraðbanki er á Østerport St.). Sendiráð Íslands býður upp á glas af víni við dagskrálok.

Aðgangur: 30 kr.

Bókmenntakvöldið er skipulagt af PILK í samstarfi við Jónshús og Sendiráð Íslands.

Nánari upplýsingar á islandsklitteratur.dk