8.4.2022

Formleg opnun sýningar Írisar Aspar Sveinbjörnsdóttur ”Hringir”föstudaginn 8.apríl kl. 17:30 - 19:30

Ljósmyndaröðin Hringir fjallar um hið smáa í náttúrunni. Rýnt er í smáatriði í jörðinni sem fæstir veita eftirtekt, svo sem hrúðurkarla, trjábörk og mynstur í skófum. Myndefnið er stækkað upp og þannig fær áhorfandinn tækifæri til að kynnast lífinu undir fótum sínum á nýjan hátt. Mynstur og áferðir sem oftast hverfa undir skósóla eru blásin upp og koma áhorfendum þannig á óvart – virka jafnvel sem óhlutbundin málverk við fyrstu sýn. Myndirnar eru settar fram í hring og þannig lögð áhersla á tenginguna við jörðina. Einnig er hringurinn tákn fyrir eilífðina í hringrás lífsins og mýktina í móður jörð. Á sýningunni eru myndir úr fjórum þemum og við hvert þema eru ljóð sem mynda brýr milli ljósmynda, landslags og meginstefsins um jörðina sem móður. 

Allar myndirnar eru til sölu, auk þess verður Íris Ösp með bók til sýnis og sölu.

Um bókina: 

Bókin er einstök blanda ljósmyndunar, grafískrar hönnunar og ljóðlistar. Í verkinu má uppgötva náttúruna við fótmál á nýjan hátt; með því að rýna í það sem sjaldan er veitt eftirtekt. Ljóðin bæta við óvæntu sjónarhorni; tengja hrjúfa jörðina við mýkt og alúð móðurinnar. Loks eru lesendur dregnir enn nær jörðinni með ilmi úr náttúrunni sem úðað verður á síður bókarinnar. Umbrotið endurspeglar umfjöllunarefnið með blaðsíðum skornum út í hringi og pappír sem tekur mið af myndefni hvers hrings.

Íris Ösp er grafískur hönnuður og ljósmyndari með BA gráðu í hönnun og ljósmyndun frá Accademia Italiana í Flórens. Íris hefur víðtæka reynslu á sviði hönnunar, m.a. af mörkun fyrirtækja og einstaklinga, hönnun og umbroti tímarita og bæklinga, ljósmyndavinnslu, umbúðahönnun og myndlýsingum. Hún hefur haldið tvær einkasýningar á ljósmyndaröð sinni Hringir: fyrsti hlutinn, hraun og mosi, var sett upp í Norræna húsinu vorið 2019. Annar hluti, fjaran, var svo sýndur í Gallerí Gróttu vorið 2020.