Svavar Knútur í Jónshúsi – ókeypis tónleikar
Svavar Knútur í Jónshúsi – ókeypis tónleikar
Við erum afar ánægð að geta boðið upp á einstakt tækifæri til að sjá tónlistarmanninn Svavar Knút í návígi þegar hann heldur ókeypis tónleika í Jónshúsi föstudaginn 12. júní.
Húsið verður opnað kl. 19:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Boðið verður upp á veitingar til sölu á vægu verði.
Svavar Knútur er þekktur fyrir einlægan og hjartnæman flutning þar sem hann blandar saman húmor, hlýju og dýpt. Tónlist hans er persónuleg og grípandi, þar sem þjóðlegir straumar mætast við áhrif frá indí- og folk-tónlist. Hann hefur heillað áheyrendur víða um heim með einstökum sögum og nærveru á sviði.
Þetta er upplagt tækifæri til að njóta kvöldstundar í góðum félagsskap og upplifa íslenska tónlist.
Allir hjartanlega velkomnir
Sjá meira hér:
Se mindre
