11.11.2026

TÓNLEIKAR – BERGMÁL FJALLANNA

TÓNLEIKAR – BERGMÁL FJALLANNA

Föstudaginn 13. nóvember kl. 20.00

Djasspíanóleikarinn, tónskáldið og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir kynnir sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna, á tónleikum í Jónshúsi.

Platan á rætur sínar að rekja til norðlenskrar sveitar þar sem Sigurdís ólst upp. Í tónsmíðum sínum sækir hún innblástur í íslenska náttúru, árstíðaskipti, birtu og myrkur. Hún vinnur jafnframt með fjölskylduarfinn, og ljóð og lög Jónasar Tryggvasonar (1916–1983), afabróður síns.

Þótt Jónas hafi látist áratug áður en Sigurdís fæddist tengjast þau í gegnum sameiginlega heimahaga, fjölskyldubönd og ástríðu fyrir listsköpun. Sigurdís hefur samið tónlist við persónuleg og myndræn ljóð hans.

Með Sigurdísi leika kontrabassaleikarinn Mariusz Praśniewski og trommuleikarinn Péter Horváth. Þau eru öll búsett í Kaupmannahöfn.

Miðaverð: 90 DKK. Miðar seldir við innganginn. Tónleikarnir vara um eina klukkustund.