Vangaveltur um lífið og tilveruna í ljóðum og tónum.
Í tilefni af alþjóðlegum degi merktum andlegri og líkamlegri heilsu karla og drengja, mun ég spila frumsamda tónlist og flytja ljóð sem eru innblásin af ferðalagi mínu í gegnum lífið og starfi mínu sem heimilislæknir.Viðburðurinn er í beinu streymi frá Jónshúsi og verður hlekkur settur inn á viðburðinn nokkrum klukkustundum áður.
Það verður líka heitt á könnunni fyrir þá sem vilja líta við og sitja í ró og næði í salnum.
Viðburðurinn er öllum að kostnaðarlausu.
Nánar um viðburðinn hér.
