• IMG_6864

2.11.2016

Velheppnað sunnudagskaffihlaðborð

Margir lögðu leið sína í Jónshús á sunnudaginn var. Að vanda var sunnudagskaffihlaðborð að lokinni íslenskri guðsþjónustu. Kvennakórinn og kammerkórinn Staka skipta með sér verkum á þessum sunnudögum. Annar kórinn syngur við messu og hinn kórinn sér um kaffihlaðborðið. Að þessu sinni var það kammerkórinn Staka sem sá um veitingarnar. Viðburðurinn var vel auglýstur, og með góðum fyrirvara, og bar það góðan árangur. Mjög margir komu í kaffið og kom fólk ekki að tómum kofanum því veitingarnar voru glæsilegar.

IMG_6832Fleiri myndir hér.