31.7.2022

Velkomin á opnun sýningar Ingu Dóru Sigurðardóttur og Birgitte Dreng Sørensen "Nordisk natur"

Laguardaginn 6. ágúst kl. 13 opna Inga Dóra Sigurðardóttir og Birgitte Dreng Sørensen samsýningu í Jónshúsi sem ber heitið Nordisk natur sem á íslensku þýðir norræn náttúra.

Íslensk náttúra er fyrirferðamikil í vatnslitamyndum Ingu Dóru, en Birgitta, sem málar akrýlmyndir, hefur oft ferðast til Grænlands, Færeyja og Íslands og áhrif þessa má greina í náttúrumyndum hennar.

Bæði Inga Dóra og Birgitte hafa haldið fjölda einka- og samsýninga í Danmörku, og einnig má þess geta að Inga Dóra hefur áður haldið sýningu í Jónshúsi, en það var í ágúst 2020.

Sýningin verður opin út ágúst.