Kynningarfundur - Fermingarfræðsla

  • 4.9.2025, 16:30 - 17:30, 1. hæð: Salur

Fermingarfræðsla í íslenska söfnuðinum felst í fermingarferðalögum, fræðslustundum í Jónshúsi og þátttöku í helgihaldi. Á hverjum vetri fer fermingarhópurinn héðan tvisvar í ferðalag til Ah Stiftsgard í Svíþjóð. Það er fallegur staður rétt utan við Gautaborg. Þar hittum við íslensk fermingarbörn frá Svíþjóð og Noregi. Ferðirnar eru að hausti og vori. Nokkrum sinnum yfir veturinn hittumst við svo í Jónshúsi í fræðslu, oftast í tengslum við Guðsþjónustur safnaðarins. Það er einnig algengt að fermingarbörn séu í fræðslu hér þó svo að fermingin fari fram á Íslandi. Skrá þarf fermingarbarn til þátttöku fyrir 1. september ár hvert. Skráning fer fram hér: https://www.kirkjan.dk/skraning/