Viðburðir

september 2026

(Sleppa dagatali)
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6
sunnudagur
7 8 9 10 11 12
13
sunnudagur
14 15 16 17 18 19
20
sunnudagur
21 22 23 24 25 26
27
sunnudagur
28 29 30      

Vorvindar glaðir - námskeið

  • 4.5.2024, 10:00 - 14:00, 1. hæð: Salur
Vorvindar glaðir er fyrsta íslenskunámskeiðið af þremur fyrir börn á aldrinum 7-12 ára.

Hin tvö námskeiðin, Bráðum koma blessuð jólin og Nú er frost á Fróni verða auglýst síðar.
 
Á þessu fyrsta námskeiði verður farið yfir helstu atriði sem snúa að merkisviðburðum íslenska vorsins og sumarsins.
Af hverju höldum við upp á sumardaginn fyrsta og 17. júní og hvað er sjómannadagur?
Við rifjum upp mánuðina í árinu og vikudagana. Þá verða einnig tekin fyrir staðsetningarhugtök eins og til dæmis fyrir framan, aftan, undir, við hliðina.

Við leysum fjölbreytt verkefni ásamt því að syngja og föndra.
Allir nemendur fá verkefnahefti til að taka með sér heim.
Skráning fer fram í gegnum [email protected]
Verð 650.-