Forsætisráðherra Íslands í Jónshúsi

Forsætisráðherra Íslands í heimsótti Jónshús.  Framundan er m.a. Þorláksblót í Kaupmannahöfn 1954, Sunnudagaskóli og fermingarfræðsla.

Forsætisráðherra Íslands, Sigurður Ingi Jóhannsson, og eiginkona hans, Ingibjörg Elsa Ingjaldsdóttir, heimsóttu Jónshús í dag. Forsætisráðherra hefur undanfarna daga verið í opinberri heimsókn í Danmörku sem lauk með stuttri viðkomu í Jónshúsi.

Lesa meira.


Mömmumorgun 

Alla fimmtudaga frá klukkan 11:00 - 13:00.


Sunnudagaskóli

Sunnudaginn 18. september hefst Sunnudagaskólinn að nýju eftir sumarfrí.

Sunnudagaskoli18.sept[2]


Þorláksblót í Kaupmannahöfn 1954

Kvikmynd eftir Þránd Thoroddsen. 

Fimmtudaginn 22. september kl. 17:15 - 19:00 hverfum við aftur í tímann.  Sýnd verður stutt kvikmynd frá Þorláksblóti í Biskupakjallaranum frá 1954 í Kaupmannahöfn.  

Nánar um viðburðinn hér.


Fermingarfræðslan fer að hefjast

Skráning í fermingarfræðslu fyrir næsta vetur stendur yfir. Áhugasamir eru beðnir að senda póst á [email protected] til að fá skráningarblað sent til baka.

 Íslenska kirkjustarfið í Danmörku býður upp á fermingarfræðslu nú sem fyrr. Þátttakendur geta komið af öllu landinu. Við reynum að brúa fjarlægðir með því að hittast á fermingarmótum og auk þess notum við skype-samtöl og tölvupóst til að vera í tengslum.

 Fermingarundirbúningurinn hefst með fermingarmóti á Åh Stiftgård helgina 7.-9. okt. 2016. Hópurinn hittist í Kastrup flugvelli um hádegi á föstudegi.  Við tökum lest til Gautaborgar þar sem við sameinumst hópi unglinga frá Sviþjóð og þaðan förum við með rútu til Åh stiftgård sem er 70 km fyrir norðan Gautaborg. Við komum aftur til Gautaborgar um hádegi á sunnudegi og þaðan tökum við lest heim til Danmerkur að nýju.  Við erum með fullorðna leiðtoga og ungleiðtoga (eldri unglinga sem hafa verið með áður) sem hitta unglingana í Kaupmannahöfn og fylgja þeim alla leið.

 Á fermingarmóti gefst gott tækifæri til að kynnast og byrja fræðsluna af krafti. Á mótinu samtvinnum við nám, leik og skemmtilega samveru. Þangað koma einnig unglingar frá Noregi og Svíþjóð. Undanfarin ár höfum við verið með um 80 unglinga samtals og 25 fullorðna sem hafa umsjón með hópnum.

 Fræðslan heldur áfram eftir fermingarmótið með því að unglingarnir sækja guðsþjónustur í Kaupmannahöfn eða í sinni heimabyggð ef of langt er að fara í íslenska guðsþjónustu. Einnig eru fræðslufundir í Jónshúsi í Kaupmannahöfn. Þá eru verkefni send með tölvupósti og einnig boðið upp á skype-kennslutíma fyrir þá sem ekki komast í kennslustundir tengdar íslensku helgihaldi.

Að vori hittist hópurinn að nýju á fermingarmóti á sama stað, helgina 5 – 7. maí 2017.

Það er valfrjálst hvort fermingin fari fram í Danmörku eða heima á Íslandi. Fermingarguðsþjónusta er áætluð í Kaupmannahöfn annan hvítasunnudag eða 5 júní 2017.

Þeir sem vilja vera með í fermingarfræðslu í vetur þurfa að skrá sig sem fyrst eða fyrir 15 september. Vinsamlega hafið samband á [email protected] og einnig er velkomið að leita frekari upplýsinga hjá undirrituðum í síma 33181056 eða hjá Lárusi Guðmundssyni fararstjóra hópsins frá Danmörku í síma 22131810.

 Vakin er athygli á að fyrir þá sem búa í Kaupmannahöfn og nágrenni verður kynningarfundur um fermingarfræðsluna sunnudaginn 25. september kl. 12.00 í Húsi Jóns Sigurðssonar. Unglingar ásamt foreldrum velkomnir. Íslensk guðsþjónusta er síðan sama dag í Skt Pauls kirkju kl. 14.00.

 

Bestu kveðjur, Ágúst Einarsson, prestur Íslendinga í Danmörku.