Fréttir og tilkynningar (Síða 25)

Fyrirsagnalisti

11.10.2012 : Framundan

Menningarnótt hjá SOSSU, föstudaginn 12. október kl. 20.00 - 23.00 "Islandsk kultur i indre Köbenhavn" Nybrogade 26. Ásta Guðmundsdóttir, Gunnar Þórðarson, Halla Bogadóttir, Svavar Knútur, SOSSA

1.10.2012 : Frá Safnaðarnefnd

Guðþjónusta verður sunnudaginn 7. október kl. 13.00 í Skt. Pálskirkju. Prestur: sr. Birgir Ásgeirsson Söngur: STAKA, stjórnandi Stefán Arason Orgelleikari: Mikael Due. Messukaffi í Jónshúsi á eftir. Almennur fundur safnaðarnefndarinnar í Kaupmannahöfn Laugardaginn 6. okt. n.k. kl. 16.30 verður almennur umræðufundur í Jónshúsi um starf og framtíð safnaðarins í Kaupmannahöfn. Meðal þeirra sem taka til máls eru séra Birgir Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Danmörku Sturla Sigurjónsson og Jón Runólfsson í Jónshúsi. Léttar veitingar verða í boði eftir fundinn. Við hvetjum Íslendinga til að sækja fundinn og taka þátt í umræðum.

12.9.2012 : Framundan í Jónshúsi

Almennur fundur, BASTARD, Bókasafn, Guðsþjónusta, ICELANDAIRvist, Íslenski skólinn, Íslenskunámskeið, Messukaffi, Myndlistarsýning, Prjónaklúbburinn, Svartur á leik, Sunnudagaskóli, Sunnudagskaffihlaðborð

Lesa meira

4.9.2012 : Skólasetningu Íslenska skólans frestað til laugardagsins 15. september kl. 11.00

Umsóknarfrestur, vegna ráðningar kennara við Íslenska skólann hefur verið framlengdur til 10. september. Sjá auglýsingu hér að neðan.

Skólasetning verður af þessum sökum 15. september næstkomandi kl. 11.00 í Jónshúsi.

Lesa meira

19.6.2012 : Íslenski skólinn í Jónshúsi skólaárið 2012 - 2013 - Skólasetning 8. september kl. 11.00. Athugið breytt dagsetning.

Skólasetning fer fram í öllum hópum laugardaginn 8. september kl. 11.00. Þar verður farið yfir skráningu, dagskrá, tímasetningar, hugmyndir, skiptingu í hópa og fleira. Námið er ætlað börnum sem eru í 1. – 9. bekk grunnskóla hér í Danmörku. Forsenda fyrir því að taka þátt í námi í skólanum er að íslenska sé móðurmál barnsins og að hún sé notuð á heimilinu. Kennslan fer fram í húsi Jóns Sigurðssonar við Øster Voldgade 12.

Lesa meira

10.5.2012 : Úthlutun fræðimannsíbúðar 2012-2013

Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá ágústlokum 2012 til ágústloka 2013.

Alls bárust nefndinni að þessu sinni 39 umsóknir. Sjö fræðimenn fá afnot af íbúðinni.

Lesa meira

20.4.2012 : Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta

Dr. phil. Pétur M. Jónasson, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus, hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Alþingi veitir verðlaunin í minningu starfa Jóns forseta í þágu Íslands og Íslendinga.

Lesa meira

17.4.2012 : Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi á sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2012, kl. 16.30. Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á lofti verkum hans og hugsjónum.

Lesa meira

11.4.2012 : Einar Már Guðmundsson í Jónshúsi

Einar Már Guðmundsson mun veita Norrænu bókmenntaverðlaununum viðtöku í Stokkhólmi 11. apríl. Í tilefni þess kemur hann fram í Jónshúsi laugardagskvöldið 14. apríl. Dagskráin hefst kl. 20 en húsið opnar kl. 19:15.

Lesa meira

13.3.2012 : Framundan í Jónshúsi

Prjónanámskeið, prjónaaðstoð, kjötsúpukvöld, ICELANDAIRvist, Páskaeggjabingo, Bach messa, guðsþjónusta og sunnudagskaffi.

Lesa meira

7.3.2012 : Alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Dagskrá í Jónshúsi

Kæru femínistar nær og fjær.

Íslenskar konur í Kaupmannahöfn halda upp á alþjóðlegan baráttudag kvenna að venju.

Lesa meira

13.2.2012 : Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2012-2013

Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið 29. ágúst 2012 til 27. ágúst 2013. Allar nánari upplýsingar og sérstök umsóknareyðublöð má finna með því að smella hér. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn. 6. mars nk.

1.2.2012 : Þorrablót 2012

Þorrablót Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn, Norðurbryggju og Icelandair verður haldið á Norðurbryggju á Christianshavn laugardaginn 11. febrúar kl. 19.00. Hér verður á borðum hefðbundinn Þorramatur með öllu tilheyrandi, en að borðhaldi loknu verður haldið ekta sveitaball þar sem Sverrir Bergmann og Sólsveitin skemmta. Veislustjóri verður Unnar Theodorsson

Lesa meira

18.1.2012 : Frá íslenska söfnuðinum í Kaupmannahöfn

Guðsþjónusta. Messað verður í Skt. Pálskirkju sunnudaginn 29. janúar kl. 13.00.
Prestur:  Sr. Arna Grétarsdóttir
Organisti: Mikael Due
Kór: STAKA
Kórstjóri: Stefán Arason

Messukaffi í Jónshúsi að lokinni athöfn.

Lesa meira

16.12.2011 : Jólamessa

Jólamessa í Skt. Pálskirkju þann 26. Desember kl. 13.00 (2. í jólum).
Prestur: Sr. Ágúst Einarsson
Kórstjóri: Sigríður Eyþórsdóttir
Organsisti: Mikael Due

Lesa meira

6.12.2011 : Jólakonukvöld

Sérstakt Jólakonukvöld verður í Jónshúsi þann 13. desember 2011 kl. 19.00

Á dagskrá er kvennahjal, eplaskífur og kaffi og svo rauðvín og hvítvín

Verið velkomnar!
Nefndin

Lesa meira

28.11.2011 : Aðventusamkoma

Aðventusamkoma í Skt. Pálskirkju laugardaginn 3. des. kl. 16.00.

Séra Sigfinnur Þorleifsson mun vera með okkur.
Tryggvi Felixson heldur jólahugvekju.
Fjölbreytt söngdagskrá.

Heitt súkkulaði og piparkökur í Jónshúsi eftir samkomuna.

Íslenski söfnuðurinn í Kaupmannahöfn.

14.11.2011 : Jólamarkaður

Hinn árlegi Jólamarkaður í Jónshúsi verður að þessu sinni á sunnudegi, þann 27. nóvember og hefst kl. 13.00 og stendur til kl. 16.00. Kvennakórskonur selja rjúkandi kaffi og bragðgóðar vöflur.

Eins og venjulega verður til sölu íslenskt malt og appelsín, laufabrauð, nýbakaðar kleinur, íslenskt konfekt, handverk af ýmsu tagi og margt fleira. Enn er hægt að panta söluborð í síma 33137997

Lesa meira

8.11.2011 : Bókmenntakvöld í Jónshúsi

Fimm rithöfundar kynna og lesa úr verkum sínum í Jónshúsi föstudaginn 11. nóvember. Dagskráin hefst kl. 20 en húsið opnar kl. 19:15. Höfundarnir eru: Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Gyrðir Elíasson, Nina Søs Vinther og Sölvi Björn Sigurðsson

 

Lesa meira
Síða 25 af 27