Fréttir og tilkynningar (Síða 13)
Fyrirsagnalisti

Sigurrós Eiðsdóttir sýnir í Jónshúsi
„Sundlaugin hefur alltaf verið partur af mínu lífi. Hún hefur sérstaklega haft mikla fagurfræðilega þýðingu fyrir mig. Það hvernig vatnið og blái liturinn tvinnist saman er einstaklega grípandi og hreyfingin í vatninu skapar síbreytileg listaverk. Augnablikin getur maður síðan fest á mynd. Þá er líkaminn líka svo fallegur í sundlauginni. Hann flýtur og er frjáls; partur af lauginni. Það að horfa á vatn hefur einnig ákveðið dáleiðsluvald, tíminn virðist oft afstæður á meðan. Það má í raun segja að sýningin sé eins konar óður minn til íslensku sundlaugarinnar sem ég sakna svo mikið”
Lesa meira
Leiðsögn um íbúð Ingibjargar og Jóns
Leiðsögn um Íbúð Ingibjargar og Jóns
Í tilefni af endurgerð íbúðar Ingibjargar Einarsdóttur og Jóns Sigurðssonar á 3ju hæð hússins verður leiðsögn um sýninguna næstu sunnudaga frá kl 13 til 14.
Halla Benediktsdóttir, umsjónarmaður mun veita gestum og gangandi innsýn í heimili þeirra hjóna eins og það var um 1860, en eftir verulega vinnu á liðnu ári er íbúðin nú að mestu leyti eins og hún var á þeim tíma.
Allir velkomnir
Gleðilegt ár
Í tilefni áramóta langar mig að stikla á stóru varðandi starfsemi hússins á liðnu ári. Við byrjum á fréttum af kórunum, en óhætt að segja að áhugi Íslendinga á kórsöng sé mikill hér í borg, því auk þeirra fjögurra kóra sem nefndir eru hér að neðan er Barnakórinn með aðstöðu til æfinga Jónshúsi.
Lesa meira
Íslensk hátíðarguðsþjónusta
Íslensk hátíðarguðsþjónusta verður haldin á öðrum degi jóla, miðvikudaginn 26. desember klukkan 14 í Skt. Pauls kirkju.
Jólakórinn leiðir söng undir stjórn Maríu Aspar Ómarsdóttur og Svafa Þórhallsdóttir syngur einsöng.
Orgelleik annast Sólveig Anna Aradóttir og prestur er sr. Ágúst Einarsson.
Verið hjartanlega velkomin.

Sýning á endurgerðu heimili Ingibjargar og Jóns
Forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, opnaði fimmtudaginn 6. desember sl. sýningu í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á heimili Ingibjargar Einarsdóttur og Jóns Sigurðssonar. Heimili þeirra sem var á 3. hæð hússins hefur verið endurgert á grundvelli heimilda um líf þeirra hjóna í Kaupmannahöfn, byggingasögulegra rannsókna á íbúðinni sjálfri auk sagnfræðilegra rannsókna á heimilislífi um miðbik 19. aldar í Kaupmannahöfn.
Sýningin er opin alla daga nema mánudaga.
Lesa meira
Aðventuhátíð í Skt. Pauls kirkju og heitt súkkulaði með rjóma í Jónshúsi
Sunnudaginn 9. desember klukkan 14 verður hin árlega aðventuhátíð íslenska safnaðarins í Danmörku haldin hátíðleg í Skt. Pauls kirkju.
Að lokinni aðventuhátíðinni í kirjunni er öllum boðið upp á heitt súkkulaði með rjóma og smákökur í Jónshúsi.
Lesa meira
Alþingi býður til opnunar nýrrar sýningar í Jónshúsi.
Heimili Ingibjargar og Jóns.
Miðstöð Íslendinga í Kaupmannahöfn 1852 - 1879.
Fimmtudaginn 6. desember kl. 17. - 20.
Boðið verður upp á jólaglögg og eplaskífur.
Kórarnir sem hafa aðstöðu í Jónshúsi munu syngja jólalög.
Allir velkomnir
Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúð fræðimanns á 4. hæð hússins almanaksárið 2019. Nefndinni bárust að þessu sinni 36 gildar umsóknir um dvöl í fræðimannsíbúðinni. Úthlutað var dvalartíma til eftirtalinna fræðimanna:
Lesa meira
Fullveldinu fagnað á Norðurbryggju
Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins fer fram vegleg hátíðardagskrá á Nordatlantens Brygge laugardaginn 1. desember 2018 frá kl. 15-20.
Hátíðardagskráin er sniðin að öllum aldri og munu nokkrir af ástsælustu skemmtikröftum íslensku þjóðarinnar stíga á stokk.
Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir.
Lesa meiraHandavinnudagur í Jónshúsi - þriðjudaginn 6. nóvember.

Aðalfundur Íslendingafélagsins
Verður haldinn föstudaginn 26. október klukkan 18:00 í Jónshúsi.
Lesa meiraSunnudagur 21. október
Íslensk guðsþjónusta í Skt Pauls kirkju kl. 14:00.
Sunnudagskaffihlaðborð kl. 15:00 í Jónshúsi
Kaffihlaðborð með brauðtertum og hnallþórum að hætti Kvennakórsins.
Fullorðnir 80 kr og ókeypis fyrir börn yngri en 10 ára.
Allir velkomnir
Lesa meira
Nordisk lys i mørket
Kammerkórinn Staka heldur tónleika sunnudaginn 21. október klukkan 15.00 í Taksigelseskirken í Kaupmannahöfn.
Haustið 2018 hefur íslenski kammerkórinn Staka safnað saman tónlist frá norðurlöndunum sem fjallar um hið djúpa myrkur í náttúrunni og sálinni, sem þrátt fyrir allt kemst ekki hjá því að vera uppljómað af þrjóskukenndri birtu ljóss og vonar.
Lesa meira
Segjum söguna með útsaumi
Um þessar mundir er verið að endurgera þriðju hæðina í Jónshúsi, þar sem þau Ingibjörg og Jón bjuggu frá 1852 til dauðadags, 1879. Í því sambandi leitum við nú að sjálfboðaliðum til að taka þátt í að endurskapa heimili þeirra hjóna.
Lesa meira
Fræðimaður segir frá
Á morgun þriðjudaginn 9. október kl. 17:00 ætlar Dr. Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir og fræðimaður í Jónshúsi ætlar að fjalla um Streituskólann- kulnun í starfi og sjúklega streitu.
Allir velkomnir.

Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2019
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið 2. janúar 2019 til 17. desember 2019. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en mánudaginn 29. október næstkomandi. Nánari upplýsingar er að finna á vef Jónshúss.
Lesa meira
Haustfundur Dansk-Islandsk Samfund í Jónshúsi
Á fundi hjá Dansk-Islandsk Samfund fimmtudaginn 27. september kl. 19.30 verður fjallað um leið Íslands frá fullveldi 1918 til sjálfstæðs lýðræðisríkis 1944.
Lesa meiraKrílasöngur
Svafa Þórhallsdóttir söngkona og kórstjóri verður með
tónlistarstund fyrir ungabörn 3 - 12 mánaða í dag klukkan 11:00.
Aðgangur ókeypis og að loknum krílasöng er foreldramorgunn.

Heimsókn í Jónshús
Þriðjudaginn 11. september kom hópur fyrrverandi alþingismanna og makar í heimsókn í Jónshús.
Lesa meira