Fréttir og tilkynningar (Síða 9)
Fyrirsagnalisti
Jónshús lokað vegna sumarleyfa til 31.júlí
Húsið er lokar frá 1. júlí til og með 31. júlí. Jónshús opnar aftur sunnudaginn 1. ágúst.
Gleðilegt sumar.

Fræðimaður segir frá
Ólafur Ingólfsson, prófessor í jarðfræði við Háskóla Íslands og fræðimaður mun halda kynningu á eldsumbrotunum í Jónshúsi nk. miðvikudag, 2. júní. kl. 13.
Þar mun hann sýna tvö stutt myndbönd um gosið, ræða þennan jarðfræðilega viðburð, og svara spurningum. Þá hefur hann meðferðis sýni af yngsta bergi á jörðinni fyrir þátttakendur að skoða og handleika.

Böðvari Guðmundssyni veitt verðlaun Jóns Sigurðssonar 2020
Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2020 féllu í hlut Böðvars Guðmundssonar, rithöfundar, ljóðskálds, leikskálds og fyrrverandi kennara. Böðvari voru veitt verðlaunin fyrir framlag hans til að stuðla að blómlegri menningar- og félagsstarfsemi í Jónshúsi, en í september 2020 var hálf öld liðin frá því að Jónshús varð miðstöð félags- og menningarstarfsemi Íslendinga í Kaupmannahöfn.
Lesa meiraÚthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúð fræðimanns á 2. hæð hússins frá ágústlokum 2021 til sama tíma að ári. Alls bárust nefndinni að þessu sinni 27 gildar umsóknir. Þeir sem fengu úthlutað á yfirstandandi tímabili en gátu ekki nýtt dvöl vegna ferðatakmarkana og heimsfaraldurs kórónuveiru fengu forgang við úthlutun, sbr. auglýsingu á vef Jónshúss.
Fræðimenn sem fengu úthlutun, fyrir utan þá sem bættur var dvalartími, eru:

Jónshús opnar
Jónshús opnar, hægt og rólega.
Frá og með þriðjudeginum 21. apríl verður Jónshús opið, á venjulegum tímum, en með takmörkunum í takt við fyrirmæli yfirvalda varðandi fjölda, fjarlægð og hreinlæti.
Lesa meiraUmsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2021-22
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota frá ágústlokum 2021 til sama tíma að ári. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 13. apríl næstkomandi.
Lesa meiraAA - fundur á sunnudögum.
Vegna fjöldatakmarkana falla AA fundur niður.
Yfirlit yfir starfsemi og viðburði í Jónshúsi 2020
Starfið í hófst með krafti. Spennandi ár var í vændum þar sem fagna átti 50 ára starfsafmæli hússins þann 12. september. En margt fór öðruvísi en ætlað var. Hér fylgir yfirlit um það helsta sem gerðist á árinu.
Lesa meira
Fjallkonan fríð
Sigrún Eldjárn sem nú er fræðimaður í Jónshúsi opnaði sína þriðju einkasýningu í Jónshúsi á laugardaginn 5. desember.
Í ár er fjallkonan okkar sem er viðfangsefnið. Hún er hér sýnd í ýmiss konar óvæntu ljósi.
Um er að ræða myndir unnar með blýanti og vatnslitum á pappír.
Myndirnar eru til sölu og allar gerðar á árinu 2020. Sýningin er opin á opnunartíma Jónshúss.
Lesa meira
FJALLKONAN FRÍÐ – opnun
Sigrún Eldjárn sem nú er fræðimaður í Jónshúsi opnar sína þriðju einkasýningu í Jónshúsi á laugardaginn.
Vegna samkomutakmarkana verður ekki um hefðbundna sýningaropnun að ræða en bæði á laugardegi 5. des. milli 16 og 18 og á sunnudeginum 6. des. milli kl 13 og 17 mun Sigrún vera á staðnum og taka á móti gestum.
Lesa meiraÚthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúð fræðimanns á 4. hæð hússins árið 2021. Alls bárust nefndinni að þessu sinni 34 gildar umsóknir. Þeir sem fengu úthlutað á yfirstandandi tímabili en gátu ekki nýtt dvöl vegna ferðatakmarkana og heimsfaraldurs kórónuveiru fengu forgang við úthlutun, sbr. auglýsingu á vef Jónshúss.
Fræðimenn sem fengu úthlutun, fyrir utan þá sem bættur var dvalartími, eru:
Lesa meiraFræðimaður segir frá
Lilja Árnadóttir, fræðimaðurinn sem nú dvelur í Jónshúsi.
Flutti erindi sem hún kallarði
,,Spor miðalda í íslenskum útsaumi” miðvikudaginn 21.október 2020.
Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn 2021
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, samkvæmt reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota árið 2021. Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 3. nóvember næstkomandi.
Lesa meira
Félag heldri borgara í Kaupmannahöfn
Félag heldri borgara í Kaupmannahöfn og nágrenni var stofnað í september 2019. Markmið þessa hóps er að sameina Íslendinga á besta aldri sem búa á Kaupamannahafnarsvæðinu (öllum opið). Haldnir verða ýmsir viðburðir svo sem félagsvist, fræðslufundir, þorrablót og fleira, með það að leiðarljósi að bjóða upp á skemmtun og afþreyingu og í leiðinni efla tengslanet fólks. Hópurinn mun hafa aðsetur í Jónshúsi og mun dagskráin að mestu leiti fara fram á daginn.
Lesa meira
Fermingarguðþjónusta
Sunnudaginn 20. september verður fermingarmessa á vegum íslenska safnaðarins í Esajas kirkju.
Fjögur börn verða fermd í messunni. Því miður þá verðum við að takmarka fjölda þátttakenda vegna fjöldatakmarkana sem nú eru í gildi. Því veitum við fermingarfjölskyldunum forgang í þessa messu og treystum því að aðrir síni því skilning.
Við hlökkum mikið til að geta boðið upp á hefðbundið helgihald á nýjan leik.

Afmælishátíð í Jónshúsi frestað.
Stjórn Húss Jóns Sigurðssonar hefur ákveðið að fresta afmælishátíð sem halda átti í Jónshúsi 12. september nk. í tilefni þess að þá eru 50 ár liðinn frá því að Jónshús var opnað sem miðstöð félags- og menningarlífs Íslendinga í Kaupmannahöfn.Um leið og aðstæður leyfa verður blásið til afmælisfagnaðar og vonandi ekki innan of langs tíma.
Lesa meiraInga Dóra Sigurðardóttir sýnir í Jónshúsi
Laugardaginn 23. ágúst opnaði sýning Ingu Dóru Sigurðardóttur, Náttúrudraumar á sal Jónshúss.
Lesa meira
Nátturudraumar - Opnun sýningar Ingu Dóru
Laugardaginn 22. ágúst kl. 17 verður sýning Ingu Dóru Sigurðardóttur, Náttúrudraumar, formlega opnuð á sal Jónshúss.
Sýndar verða akrýl- og vatnslitamyndir. Viðfangsefni Ingu Dóru eru aðallega kyrralífsmyndir og landslagsmyndir, en hugmyndirnar sækir hún í íslenska náttúru.

Listamannaspjall "List Libaratis"
Listakonurnar Elísabet Olka og Una Gunnarsdóttir verða með leiðsögn og listamannaspjall um sýninguna þeirra "List Libaratis" sem nú er á sal Jónshús kl. 18 föstudaginn 15. ágúst.
Aðgangur ókeypis.
Boðið verður uppá kaffi og léttvín.

Á laugardaginn opnaði samsýning Elísabetar Olku og Unu, List Libertas, óður til frels.
Með þessari sýningu vilja listakonurnar miðla þeirra persónulega frelsi í verkum. Þær telja það viðeigandi þar sem myndirnar hanga með sjálfum Jóni Sigurðssyni frelsishetju, sem vakir yfir okkur.
Lesa meira